Kurso de Esperanto

Ókeypis niðurhal

Forritið Kurso de Esperanto - Útgáfa 3.2 (13/feb/2006) - Windows

Windows

Forritið Kurso de Esperanto - Útgáfa 3.0 (20/des/2003) - Linux

Linux

Taktu eftir! Þegar byrjað er að nota Linux-útgáfuna af Námskeiði í esperanto þarf notandinn að veita tilteknum tólum upplýsingar, og einnig netforritinu og póstforritinu sem hann notar. Til þess að gera þetta verður notandinn að fara í upphafsvalmynd Námskeiðsins, smella á "Stillingar" og fara á síðuna "Hljóð og netið". Ef yfirmerktu stafirnir í esperanto birtast ekki rétt á skjánum settu þá upp Unicode-font og tilgreindu þennan font í stillingarhlutanum í Námskeiðinu.

  • Lágmarkskröfur um búnað til að nota Námskeiðið: Linux með gluggakerfi, Pentium 100, 16 MB vinnsluminni, SVGA, hljóðkort, hljóðnemi (valfrjáls), 20 MB diskrými.
  • Uppsetning:
    • 1. Sæktu skrána og vistaðu í bráðabirgðamöppu;
    • 2. Afþjappaðu skrána "kurso.tar.gz" og keyrðu uppsetningarforritið "install.sh";
    • 3. Forritið er sett upp í möppunni "/usr/share/kurso", og hægt er að keyra það með línuskipuninni "kurso".
  • Valkostur 1 - Niðurhal frá þessum stað á netinu

Hjálparforrit fyrir þýðingu á Námskeiðinu - Windows

Ef þér hefur líkað vel við þetta forrit og vilt þýða það á þitt tungumál (námskeiðið hefur nú þegar verið þýtt á fleiri en 23 tungumál), getur þú notað þetta hjálparforrit. Til þess að það vinni rétt verður þegar að vera sett upp í tölvunni. Láttu endilega höfundinn vita um verk þitt, því að með því móti getur hann haft samband við þig vegna breytinga og nýjunga er lúta að þýðingarvinnunni.

© 2001-2009 Kurso de Esperanto - Öll réttindi áskilin

Þýðandi: Hallgrímur Sæmundsson